Dreymir þig um að komast í nám - eftir all langt hlé?
* Hvað langaði þig til að verða þegar þú yrðir stór?
* Áttir þú þér draum sem þú lést ekki rætast?
* Þurftir þú að fara að vinna og horfðir á eftir hinum sem gátu leyft sér að fara í nám?
* Eða ...... langaði þig - en treystir þú þér ekki af því að ..... þú myndir örugglega ekki geta staðið þig?
* Varstu aldrei með góðar einkunnir í grunnskóla, gafst þú upp áður en þú byrjaðir?
Það er óþarfi að hugsa svo, þú getur það sem þú vilt!
Leyfðu draumnum að rætast!
Hvernig væri bæta við sig þekkingu og færni til að vera betur fær um að takast á við ný og spennandi viðfangsefni?
Þú getur það alveg! Þú getur jafnvel lesið margar bækur á einni önn - og farið létt með það! Námsbækurnar geta orðið spennandi viðfangsefni. Það eru til ýmsar leiðir til að gera sér lesturinn auðveldari, eiga auðveldara með að skilja efnið - og að halda einbeitingu við lesturinn og námið almennt. Lærðu myndlestur (www.photoreading.is ) eða aðrar aðferðir sem nýtast þér við allt nám.
"Leyndarmálið" við að blómstra í námi
Þú getur líka byggt upp sjálfsímyndina, sett þér markmið og unnið með þau á ákveðinn hátt. Tileinkaðu þér aðferðir "Leyndarmálsins" og fléttaðu þær inn í nútíma námstækni. Lestu þér til á netinu, t.d. á www.blomstradu.net, þar er að finna ýmislegt sem þú getur nýtt þér við að byggja þig upp, auka trúna á eigin kjark. Gerðu námið spennandi, þannig verður það auðveldara. Þetta á líka við þig sem hefur verið að kljást við lesblindu.
Hvað þig langar að læra?
Skrifaðu það í 1. prs. og nt. eins og það sé nú þegar þannig. Ekki láta spurninguna um "hvernig" trufla þig, hún á ekki erindi til þín eins og stendur, núna er málið að ákveða hvað þú vilt. Þegar þú hefur ákveðið hvað þú vilt, þá er að leita að námi sem hentar þér - og skoða hvaða möguleikar bjóðast til að gera þér verkið auðveldara í framkvæmd.
Framtíðin hefst núna!
Þú berð ábyrgð á eigin lífi og hamingju, leggðu því drög að því að breyta því sem þú vilt breyta. Breyttu því svo! Dagurinn í dag þarf ekki að vera lýsandi fyrir framtíð þína. Dagurinn í dag hefur ekki aðeins mótast af fjárhagsaðstæðum þínum hingað til, heldur ekki síður af því hvernig þú hefur hugsað, hvernig sjálfsímynd þín hefur haft áhrif á líf þitt, hvernig þú sérð framtíðina, hvernig þú trúir á þig!
Á vit ævintýra framtíðarinnar
Eru mörg ár síðan þú varst í námi? Það er óþarfi að láta það aftra sér. Í dag er hægt að finna alls konar námsmöguleika. Taktu fyrstu skrefin með gát, náðu yfirsýn og öryggi í náminu, haltu síðan áfram. Það að hefja nám að nýju eftir 5 - 20 ára fjarveru frá skólabekk hleypir auðveldlega hálfgerðri skelfingu og magakrampa af stað hjá mörgum. Slíkt er óþarfi, byggðu upp innri vellíðan. Leitaðu upplýsinga sem þú getur nýtt þér á auðveldan hátt Aðalmálið er að byrja, taka fyrstu skrefin og halda síðan áfram. Leggðu stíginn þinn á vit ævintýranna.
Skoðaðu hvað námskeiðin PhotoReading og Lærðu að læra geta gert fyrir þig. Eins skaltu skoða hvernig markþjálfun (www.coach.is) getur hjálpað þér til að komast á þá braut hugur þinn stendur til.
Gangi þér vel
Jóna Björg Sætran, M.Ed., kennari, markþjálfi
Námstækni ehf.
s. 899 4023
******************************************************************
Námstækni kynnir Einyrkja
Með Einyrkja getur einyrkinn hæglega unnið launaútreikningana sjálfur fyrir rekstur sinn á einfaldan og hraðvirkan hátt.
Einnig útfyllt virðisaukaskattsskýrslu RSK 10.01 ( í sitt hvoru töflukerfinu ).
Einyrki er ótrúlega ódýr miðað við innihald, notagildi og vinnusparnað.
Sjáðu nánar á síðunni www.einyrki.com
Einyrki - Launaútreikningar og Vsk-Uppgjör
Námstækni ehf. kynnir hinn vinsæla Einyrkja